FRÉTTIR

25.7.2010 13:38:38
Verslunarmannahelgin 2010

7.7.2010 17:40:16
Meistaramót Golfklúbbsins Þverá, Hellishólum

15.6.2010 17:52:37
Jónsmessumót - Golf

8.6.2010 09:08:28
Tilboð í júní

26.5.2010 19:51:57
Eurovision og kosningavaka

[Næsta] [Síðasta]
Allar fréttir >>




Staðsetning / location
Staðsetning - smelltu...
Skráðu netfang þitt hér til að fá sendan fréttapóst um ýmsa viðburði og tilboð hjá Hellishólum
Skráning á póstlista
Netfang:



25.7.2010 13:38:38
Verslunarmannahelgin 2010

Versló á Hellishólum 2010

 
Dagskrá verslunarmannahelgarinnar á Hellishólum 2010. Föstudagur. 21:00 - 21:30 Happy hour og Kareoky 21:30 Danskennsla í kantrý dansi. Kennari: Irma Gunnarsdóttir danskennari. Allir að mæta 22:00 - 02:00 Stuðball með dúettnum Hljómum. Laugardagur 08:00 Morgunmatur 09:30 Bíó fyrir yngri kynslóðina popp og djús. ( Verð frítt) 13:00 Andlitsmálun og blöðrur fyrir börn í veitingarskála Verð 500 fyrir andlitsmálun, blöðrur frá 300-500 13:00 – 15:00 Göngutúr um nágrenið (Mæting í veitingaskála.) 14:00 Blakmót. Skráning í veitingaskál 15:00 Golfkennsla fyrir alla. (verð kr. 500 á mann) Víðir Jóhansson eigandi Hellihóla sér um kennsluna. Skráning í veitingaskála 16:00 Þrautakeppni á par 3 vellinum. Þátttökugjald 500 kr. Skráning í veitingaskála . Verðlaun fyrir fyrstu 3 stætin 18:00 Beljuskoðun, farið á næsta bæ og séð hvernig mjólkin verður til. Verð 700 fullorðnir og 500 börn. Skráning í veitingaskála 19:00-20:30 Réttur dagsins 21:00 -21:30 Happy hour og Kareoky 21:30 Brenna og brekkusöngur. Dúettinn Hljómur spilar við brekkusöng. 22:30 – 02:00 Stuðball með dúettnum Hljómum. Sunnudagur 08:00 Morgunmatur 09:30 Bíó fyrir yngri kynslóðina popp og djús. ( Verð frítt) 10:00 – 16:00 Hátíðargolfmót. Skráning í veitingaskála eða golf.is (Verð 4.000) 11:00 Skokkað um nágrennið, skráning í veitingarskála. 13:00 Andlitsmálun og blöðrur fyrir börn í veitingarskála 15:00 Blakmót. ( skráning í veitingaskála) 17:00 Reipitog (Mæting í veitingaskála.) 18:00 Beljuskoðun, farið á næsta bæ og séð hvernig mjólkin verður til. Verð 700 fullorðnir og 500 börn. Skráning í veitingaskála 19:00-20:30 Réttur dagsins 21:00 -21:30 Happy hour + kareoky 21:30 - 22:00 Kennsla í bindishnút karla 22:00 Verðlaunaafhending Golfmóts 23:00-1:00 Diskó, barinn opinn til kl. 1:00 Hlökkum til að sjá þig Sarfsfólk Hellishóla

Meira >>  
 

7.7.2010 17:40:16
Meistaramót Golfklúbbsins Þverá, Hellishólum

Laugardaginn 10. júlí og sunnudaginn 11. júlí

 
Meistaramót Golfklúbbsins Þverá 2010 KEPPNIS SKILMÁLAR Keppnin er höggleikur án forgjafar í karlaflokki Í kvennaflokki er höggleikur með og án forgjöf. Klúbbmeistari karla og kvenna er án forgjafar. Þátttökugjald er kr. 5.000 fyrir félaga. Innifalið í gjaldinu er matur í lokahófi á sunudagskvöldið milli 17:00 til 19:00 Keppt verður í eftirtöldum flokkum. 1. flokkur karla, grunnforgjöf 0,0 - 10,0 leikur 36 holur af gulum teigum 2. flokkur karla, grunnforgjöf 10.1 - 18.0 leikur 36 holur af gulum teigum 3. flokkur karla, grunnforgjöf 18.1 og hærri leikur 36 holur af gulum teigum Flokkur kvenna leiknar 36 holur af rauðum teigum Skráningarfrestur er til klukkan 22:00 föstudaginn 9. júlí Verði skor jöfn til verðlauna í 1. sæti án forgjafar skal leika þriggja holu umspil á 1.,13. og 14. til úrslita, en nægi það ekki þá bráðabana á holu 1 þar til úrslit fást. Verði skor jöfn til verðlauna í 2. eða 3. sæti án forgjafar skal leika bráðabana á holu 1 þar til úrslit fást. Verðlaunaafhending fer fram strax að móti loknu og síðan verður lokahóf milli 17:00 og 19:00 Nefndin.

Meira >>  
 

15.6.2010 17:52:37
Jónsmessumót - Golf

laugardaginn 19. júní

 
Hið árlega Jónsmennumót verður haldið 19 júní á Þverárvelli. Mótið byrjar kl: 21:00 og spilaðar verða 9 holur. Vellinum verður breytt að vanda og spennan verður mikil eins og undanfarin ár. Léttar veigar verða innifaldar í mótsgjaldi. Karokýkeppni verður eftir mót í veitingaskála. Hægt er að skrá sig í síma 487-8360 eða á www.golf.is Verð kr. 2.000

Meira >>  
 

8.6.2010 09:08:28
Tilboð í júní

50% afsláttur á tjaldsvæði og golfi

 
Ert þú á leið í útilegu? Glæsilegt tjaldsvæði, heitir pottar, sturtur, golf, veiði, trampolín, leiksvæði fyrir börnin. Tattú fyrir börn í boði Möggu. Veitum 50% afslátt á tjaldsvæði og golf í júní Láttu sjá þig og upplifðu frábæra tíma í faðmi fjölskyldunnar í fallegu umhverfi.

Meira >>  
 

26.5.2010 19:51:57
Eurovision og kosningavaka

Laugardaginn 29. maí

 
Mikið fjör og mikið gaman Laugardaginn 29. maí verður fjör á barnum á Hellishólum. Við hvetjum Heru okkar og hennar lið í Eurovision og svo tekur við kosningavaka yfir sveitarstjórnar kosningunum. Fjör sem þú mátt ekki missa af. A Aldrei að vita nema að Víðir syngi taki lagið í kareoky fyrir gesti, spurning hvort það verður eurovisionlagið í ár... Víðir junior sýnir listir sína á barnum Hlökkum til að sjá ÞIG

Meira >>  
 

20.5.2010 13:32:43
Hvítasunnuhelgin

Blues festival og Golfmót

 

Meira >>  
 

8.4.2010 11:50:20
Golfskólinn á Hellishólum

sumarið 2010

 
Golfskólinn á Hellishólum Golfskólinn á Hellishólum hefur verið starfsræktur frá árinu 2005. Skólinn býður uppá sérstök kvenna-, hjóna- og almenningsnámskeið. Námskeiðin eru haldin í nokkra daga í senn, innifalið er golfkennsla, golfhringir, fullt fæði, gisting og kvöldvökur á meðan á dvölinni stendur. Golfkennslan er fyrsta flokks kennd af afbragðs golfkennurum, erlendum og innlendum. Skólinn er bæði fyrir byrjendur og lengra komna. Golfskólinn sumarið 2010 Sumarið 2010 verða í boði 2 námskeið í Golfskólanum á Hellishólum, fyrsta námskeiðið er einungis tileinkað konum, annað námskeiðið er fyrir bæði kynin. Skráning er hafin í síma: 487-8360 eða hellisholar@hellisholar.is Kvennanámskeið og almenningsnámskeið Námskeiðið er þriggja daga. Hópnum verður skipt í tvo hópa. Annar hópurinn spilar 9-18 holur og hinn fer í kennslu á meðan. Eftir hádegismat skipta hóparnir um hlutverk. 14.-16. júní - kvennanámskeið 20.-22. júní - almenningsnámskeið Við erum stolt að kynna að PGA golfkennarinn Sigurpáll G. Sveinsson mun kenna í golfskólanum á Hellishólum sumarið 2010. Sigurpáll hefur verið einn af okkar fremstu golfspilurum undanfarin 15 ár. Sigurpáll hefur hampað íslandsmeistaratitil karla þrisvar sinnum. Hann var fastamaður í landsliðum Íslands frá árinu 1991 - 2003. þegar hann gerðist atvinnumaður í golfi. Á 5 ára ferli sem atvinnumaður hefur Sigurpáll reynt að komast inná evrópsku mótaröðina, en ekki náð þeim árangri enn. Sigurpáll hefur gríðarlega reynslu sem afreksmaður í golfi bæði hérlendis og erlendis. Árið 2005 ákvað Sigurpáll að fara í golfkennaranám, enda hafði hann starfað við barna-og unglingakennslu frá árinu 1991. Sigurpáll hefur kennt fólki á öllum getustigum golfsins síðan 2005. Hann útskrifaðist frá golfkennaraskóla Íslands vorið 2008 og hefur getið sér gott orð sem golfkennari. Í dag starfar Sigurpáll sem golfkennari ásamt því að vera formaður PGA á Íslandi, sem eru samtök atvinnukylfinga og golfkennar á Íslandi. Þess má geta einnig að Sigurpáll hefur margsinnis verið farastjóri í hinum ýmsu golfferðum og kennt í golfskólum erlendis á vegum íslenskra ferðaskrifstofa og ættu því margir golfferðalingar að kannast við hann. Sigurpáll G. Sveinsson Uppbygging skólans sumarið 2010 3ja daga skóli - kvenna og almenningsnámsk. Nemendum er skipt í tvo hópa A og B. Hóparnir skiptast á að vera í golfkennslu og spila á velli. Dagur 1 08:00 Morgunmatur 09:00 Hópur A golfkennsla, farið verður í grunnatriði, s.s. uppstillingur, grip, mið, boltastöðu, golfsveiflu ofl. Pelz æfingar, ekkert tengt klæðaburði :-) 09:00 Hópur B spila á velli 10:30 Kaffi hjá kennsluhóp 11:00 Æfingasvæði. Sveiflan tekin uppá video hjá kennsluhóp 12:15 Hádegismatur og umræður um skorkort 13:00 Hópur A spila á velli 13:00 Hópur B golfkennsla, sama dagsskrá og fyrir hádegi, kaffi kl. 14:30 19:30 Videoskoðun 20.00 Kvöldmatur Dagur 2 08:00 Morgunmatur 09:00 Hópur B golfkennsla, grunnatriði púttstrokunnar æfð með áherslu á lengdar- og stefnustjórnun 09:00 Hópur A spila á velli 10:30 Kaffi 11:00 Grunnatriði stuttra vippa æfð með áherslu á lengdar- og stefnustjórnun. 12:15 Hádegismatur og umræður - hvað er forgjöf. 13:00 Hópur B spila á velli 13:00 Hópur A golfkennsla, sama dagsskrá og fyrir hádegi, kaffi kl. 14.30 16.15 Allir saman í Sandgryfju kennslu. 20:00 Kvöldmatur og kvöldvaka Dagur 3 08:00 Morgunmatur 08:30 Lærðu reglurnar og umgengni. Verklegt 11:00 Pútt, vipp og sláttur - þrautir. 12.30 Matur 13:15 Fyrsti rástími í golfmóti golfskólans (ekkert stress fyrir þá sem eru byrjendur) 16:30 Kaffi, verðlaunaafhending og kveðjustund Verð kr. 54.900 á mann Innifalið: Gisting, fullt fæði, golfkennsla, golfhringir og kvöldvökur.

Meira >>  
 

27.3.2010 16:54:29
Hranvöfflur og fimmvörðuborgari með gosi

Hranvöfflur og fimmvörðuborgari með gosi

 
Gostilboð á Hellishólum Alvöru fimmvörðuborgari með gosi kr. 1.250 Hraunvaffla og heitt súkkulaði kr. 500 Hellishólar fyrir gosferðalanga

Meira >>  
 

22.3.2010 18:55:09
Páskar á Hellishólum

Páskamót

 

Meira >>  
 

1.2.2010 16:54:02
Sumarið 2010

Verðskrá - skráning hafin

 
Góðan daginn kæru vinir og gleðilegt ár. Nú styttist í sumarið og erum við mikið farin að hlakka til að taka á móti ykkur.

Meira >>  
 


<<Fyrri      Næsta>>

Til baka 

Hellishólar ehf - Fljótshlíð - Suðurlandi - Sími: 487 8360 - Fax: 487 8364 - Netfang: hellisholar@hellisholar.is